Leiðbeiningar
InnskráningEftir innskráningu smellir þú á þann efnisflokk sem þú vilt skrá fasteign í og smellir á hnappinn "Add your listing here" efst í hægra horni síðunnar.
Fasteignaformið
Skráningarformið er einfalt og aðgengilegt. Fyrst setur þú inn titil (Name), gott er að nota götuheiti fyrir titil. Næst setur þú inn lýsingu (Description) á eign og þar sem vefurinn er gerður fyrir enskumælandi notendur þá er mikilvægt að lýsingin sé á ensku.
Í reitinn "Estate Agent" setur þú inn nafn fasteignasölunnar og síðan koma nánari upplýsingar um eignina s.s. stærð, verð, byggingarár o.s.frv. Mikilvægt er að setja inn götuheiti, póstnúmer, stað og land til þess að GoogleMap kortið virki rétt.
Að lokum setur þú inn myndir, en hægt er að setja inn allt að 8 myndir og kemur fyrsta myndin sem þú setur inn fremst í skráningunni og á forsíðu vefsins.
Að breyta upplýsingum um þig
Þú getur breytt lykilorðinu þínu með því að smella á "My Account" og "profile" upplýsingum um þig með því að smella á "My Page" í hægri valmyndinni sem kemur upp við innskráningu. Upplýsingum eins og síma, faxnúmeri, heimilisfangi o.fl. er hægt að breyta. Þú getur einnig sett inn greinar eða fréttir frá þér sem birtast þá á kynningarsíðunni þinni.