Selás 5

Hesthús við Selás 5 í Borgarnesi. Um er að ræða 16 hesta rúmgott og bjart hesthús með turni. Húsið er byggt 2007 - stálgrindarhús klætt með bárujárni og stendur á leigulóð.
Í húsinu eru 8 tveggja hesta stíur, þar af fjórar sem hægt er að nota sem stóðhestastíur. Hiti í gólfi og einnig í stíum, ásamt frárennslisrauf, sparar notkun á undirburði um 70%. Öflug vifta ásamt hitanum í gólfi skapar óvenju loftgott og algerlega rakalaust hús.
Aðstaða fyrir hnakka, til böðunar, fyrir heyrúlllur og járningaraðstaða á neðri hæð ásamt flísalagðri forstofu með sérinngangi. Innangengt í hesthúsið frá forstofu og einnig upp hringstiga á efri hæð þar sem er mjög hugguleg og vönduð panelklædd setustofa með eldunaraðstöðu ásamt salerni. Samkvæmt eignaskiptasamningi er hesthús og hlaða 117,9 ferm. og kaffistofa 14,7 ferm. Í húsinu eru þrír eignarhlutar og þessi er 42,25% í heildarhúsi og lóð. Hluti lóðar er sameign en sérafnotaflötur er um 650 ferm.
Gott útsýni úr setustofu yfir óvenju stórt gerði og nágrenni. Extra útiljós á gafli til noktunar ef verið er að vinna frameftir út í gerðinu.

Listings details

Estate Agent
Fasteignamiðstöðin
Size m²
133
Price ISK
19.5M
Postcode
310
Country
Location
310 Borgarnes
Facilities
  • Central Heating
  • Garage
Map


Send your inquiry to all the real estate agents registered with our site. Each agent will respond independently to your inquiry